Lög og reglur

1.1
Blaðaljósmyndarafélag Íslands er félag ljósmyndara sem eru meðlimir í Blaðamannafélagi Íslands (BÍ)

1.2
Félagar eru þeir sem eru félagar í BÍ og hafa sótt um aðild að BLÍ. Aðild aðsamtökunum er háð staðfestingu stjórnar BLÍ og skal umsókn vera borin upp á stjórnarfundi.

1.3
Lausamenn og sjálfstætt starfandi ljósmyndarar sem vinna við dagblöð, tímarit, netmiðla og sjónvarp eða aðra sambærilega útgáfu eru fullgildir meðlimir í BLÍ enda séu þeir félagar í BÍ.

2.1
Hætti félagar störfum og séu ekki lengur meðlimir í BÍ eða fullnægi ekki lengur skilyrðum 1. greinar laga eru þeir því ekki lengur meðlimir í BLÍ..

3.1
Blaðaljósmyndarafélag Íslands hefur það að leiðarljósi að bæta samvinnu félaga og vinna að bættri aðstöðu ljósmyndara við þeirra störf. Að gæta hagsmuna þeirra í hvívetna og vinna að aukinni menntun félaga og hæfni í starfi. Að vinna að aukinni kynningu á fréttaljósmyndun og halda tengslum við samtök fréttaljósmyndara í Skandinaviu og öðrum löndum.

3.2
Blaðaljósmyndarafélag Íslands skal efla kynningar á ljósmyndun og skipuleggja sýningar og fyrirlestra til skemmtunar og fróðleiks á ljósmyndun og tækni tengd henni.

4.1
Stjórnin skal skipuð 6 mönnum og fer hún með æðsta vald á milli aðalfunda. Á aðalfundi BLÍ er kosin stjórn og er hún skipuð af 6 mönnum. Formaður er kosinn sérstaklega og síðan fimm meðstjórnendur

4.2
Aðalfund skal halda á tímabilinu frá 1. ágúst til 1. Nóvember ár hvert. Tilkynning skal vera send félagsmönnum eigi skemur en með tveggja vikna fyrirvara um aðalfund. Dagskrá fundarins skal vera auglýst með aðalfundarboði. Fundargerð skal svo lesin upp í byrjun hvers fundar.

5.1
Lagabreytingar öðlast því aðeins gildi að þær séu samþykktar með 2/3 hluta atkvæða á aðalfundi. Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn viku fyrir aðalfund. Annars verða þær ekki bornar undir atkvæði.

6.1
Aðeins skuldlausir félagar við BÍ hafa atkvæðisrétt á aðalfundi og mega taka þátt í árlegri sýningu Blaðaljósmyndara félagi Íslands.

7.1
Blaðaljósmyndarafélag Íslands heldur ár hvert sýningu fréttaljósmynda liðins árs. Sú sýning er fastur liður félagsins og ber stjórn BLÍ að sjá um framkvæmd hennar. Sjá nánar í lið 8.1

8.1
Í byrjun hvers árs er haldin sýning og samkeppni félagsblaðaljósmyndara.

8.2a
Keppt er í eftirfarandi flokkum:
1-Fréttamynd ársins
2-Portrett ársins
3-Íþróttamynd ársins
4-Myndröð
5-Daglegt líf
6-Tímaritamynd ársins
7-Umhverfismynd ársins
Veittar eru viðurkenningar fyrir ofantalda flokka. Blaðamannafélag Íslands veitir verðlan fyrir mynd ársins. Einungis meðlimir í Blaðaljósmyndarafélagi Íslands geta sent inn myndir í forvalið.

8.3b
Fréttamynd ársins: Mynd af fréttaviðburði af innlendum eða erlendum vettvangi, sem gefur rétta mynd af því sem gerist fyrir framan myndavélina.
Portrett ársins: Mynd af persónu eða persónum,má ekki vera samsett mynd.
Íþróttamynd ársins: Mynd af íþróttaviðburði eða íþróttatengdum atburði
Myndröð: Röð af myndum sem tengjast innbyrðis og segja sögu af einhverjum atburði, 3 til 8 myndir.
Daglegt líf: Mynd af daglegu lífi fólks
Tímaritamynd ársins: Stíliseraðar og uppstilltarmyndir, t.d. Arkitektúr, matur, tíska. Portrettmyndir eiga ekki heima í þessum flokki
Umhverfismynd ársins: Landslag, borgarlandslag, náttúra.

8.4
Reglur dómnefndar:
- Í dómnefnd sitja 6 manns ásamt formanni dómnefndar.
- Allar myndir á sýningunni eru gjaldgengar sem mynd ársins.
- Heimilt er að færa myndir á milli flokka telji dómnefnd að þær eigi betur við annarsstaðar, einnig er heimilt að taka myndir úr myndaseríur og setja yfir í aðra flokka. Óheimilt er að breyta myndaröð.
- Allar myndir verða að vera teknar á keppnisári.
- Í myndafrásögn þarf að minnsta kosti ein mynd að vera tekin á árinu.
- Ef að myndum er ekki skilað inn eftir reglum sem að stjórn Blaðaljósmyndarafélags Íslands setur má dæma þær úr leik.
- Ef að vafi leikur á því hvort að átt hafi verið við mynd annað en það sem reglur leyfa má dæma hana úr leik. Dómnefnd getur kallað inn upprunalegu myndina til samanburðar. Úrskurðurdómnefndar er endanlegur
- Á opnun sýningarinnar mun formaður dómnefndar, eða annar meðlimur dómnefndar tilkynna úrslit flokka og lesa umsögn dómnefndar viðhverja viðurkenningu fyrir sig.

8.5
Markmið sýningarinn eru: – Stuðla að betri og fjölbreyttari fréttaljósmyndun á Íslandi. – Stuðla að aukinni menntun félaga og hæfni í starfi. – Vinna að aukinni kynningu á fréttaljósmyndun. – Veita ljósmyndurum tækifæri til að segja fréttir frá öllum heimshornum.
Stjórn Blaðaljósmyndarafélags gefur út frekari reglur varðandi skil á myndum í forval fyrirhverja sýningu.